24.07.2007 15:07:45 / hrabba
Indland: Upp komst um skjaldbökusmyglara
Tveir Indverjar voru um helgina handteknir á flugvelli í suðurhluta
Indlands þar sem þeir reyndu að smygla nær 900 skjaldbökum af
fágætri tegund til Malasíu. Lögregla greindi frá þessu í dag.
Skjaldbökunum hafði verið pakkað í tvær stærðarinnar ferðatöskur og
voru minnstu dýrin aðeins um þumlungur að lengd.
Skjaldbökutegund þessi er í útrýmingarhættu og getur sá sem
fundinn er sekur um að reyna að smygla þeim frá Indlandi átt von á
allt að þriggja ára fangelsisdómi.
Held að það hefði nú ekki komist upp um þá ef þeir hefðu notað
nokkra saltpillubauka. amateurs!
Annars ætla ég að óska ykkur júli gaurunum til hamingju með
afmælið!
Kveðja Hrabba
»
13.05.2007 21:11:38 / hrabba
Sæl öll
Ég og Ólmundur erum nú komin í slow-city-íið Akureyri, og ég er
allt voðalega SLOOOOOWWWWW! Ég er búin að vera hérna í tæpa 3 tíma
og strax farið að leiðast, það er kannski ástæðan fyrir því að ég
ákvað að blogga bara, vei.. En áður er þið haldið að þetta sé
hugsanlega leiðinlegasti pistill sem þið hafið lesið á þessari
annars skemmtilegu síðu þá legg ég til að einhver
bjóðist til að halda mega-party næstu helgi, svo fólk
geti fagnað próflokum hérna með almennilegum hætti!
Af mér og Óla er ekkert gott að frétta. Ég búin að vera með
magapest dauðans og greyins Óli með bólgu í lithimnunni í
auganu. Þannig að á meðan allir voru að horfa á
rissessuna þramma um Reykjavík síðasta laugardag voru ég og Óli
föst á bráðamótökunni ásamt öðrum endum samfélagsins sem hafa
ekki uppgötvað plásturinn.
Þessi pistill er svo slæmur að hann er eiginlega orðinn
góður.
Hrabba og Óli, sjúklingar
»
30.03.2007 08:33:39 / hrabba
Til hamingu með afmælið elsku besti Palli minn! Vonandi átturu
góðan dag í gær (ehemm) Minns soldið dofin í hausnum! Kisskiss
Hrabbos
»
22.03.2007 15:46:40 / árni
Já ég vil byrja á því að þakka fyrir góðar undirtektir við
síðasta bloggi... Manni hlýnar bara um hjartarætur við að lesa
þessi komment!
En annars....
Ef þið vitið um einhverja krakka á Akureyri sem eru ekki búnir
að fá sumarvinnu næsta sumar þá vantar á Greifanum í ýmis störf,
m.a. þjóninn. Greifinn er gott og traust fyrirtæki sem er stjórnað
af fólki af mjög góðum ættum og því frábær
vinnustaður!...
www.greifinn.is
»
27.02.2007 10:16:50 / árni
Þarf að fara í aðgerð á öxlinni 13. mars næstkomandi og spila
ekki meiri handbolta í vetur.
Annars allt gott að frétta af okkur Evu...búið að panta
utanlandsferð í lok maí til el benedorme!
Kær kveðja, Árni Björn skotfasti!
»
19.02.2007 10:40:35 / hrabba
Allt að gerast hérna að vanda. Allt gott bara að
frétta af okkur Hildi. Ætlaði samt að láta vita að kappinn er að
fara að skella sér til Taiwan í haust. 2 vikna ferð 4.-18. ágúst.
Ávísun á stuð og stemmningu á alþjóðaráðstefnu lyfjafræðinema
.
Mæli með www.ipsf2007.org
(verður víst að opnast í firefox).
Kveðja Palli
»
23.12.2006 17:16:19 / hrabba
Ég ætlaði að nýta tækifærið og óska ykkur öllum gleðilegra jóla og
farsælda á komandi ári. Takk fyrir allt gamalt og gott! Kær Kveðja
Hrabba Hollandersause P.s. Hver ætlar að taka að sér áramótapartýið
í ár?
»
25.11.2006 13:19:28 / hrabba
Mæting á milli 21 og 22 á Los Mellós Sexos......Snyrtilegur
klæðnaður skilda.. Hrabba og Óli
»
22.11.2006 16:23:19 / krakkarnir
Hvers virði er hlutur sem er gerður vegna fagurfræðilegra ástæðna.
Hvað liggur að baki fegurðar og hvað er það sem skapar hana? Er það
leiðin að henni? Er það birtingarmyndin, fegurðin sjálf eins og
augað sér hana? Er hún sértæk eða algild? Er fegurð heildstæð eða
getur fegurð einnig verið ljót? Er fegurð afleiða samfélags eða
menneskju? Svalar fegurðin kennd sem er sameiginleg með öllum eða
mismunandi milli manna? Svalar hún fleiri en einni kennd? Gerir
samfélagsleg og dagleg merking orðins fegurðar það að verkum að
fólk vantar orð yfir tilfinningar og hluti sem því þykir fallegt?
Gæti, vegna þess, sumar tilfinningar manna og afleiður þeirra ekki
fengið jafnmikið vægi og ella? Gera þarf mun á fegurð augans og
andans. Í nútímanum hefur vægi augans of mikið vægi miðað við
andann. Frumforsenda til að mennirnir geti réttlætt það að
skilgreina sig frá dýrum er sú að andi þeirra bjóði upp á meira en
andi dýranna´. Nú þarf ég að kúka, bíðið aðeins. Stefán
»
13.11.2006 16:28:03 / hrabba
Jæja guys... Alltaf jafn ógeðslega hress og opin? Það er alveg til
eitthvað sem heitir prívasí þannig að það óþarfi að opna sig svona
ógeðslega mikið hérna, ég er alveg sátt við að vita ekki alveg allt
um ykkur sko

En ég skal hætta öllu skítkasti og fara beint í
heita stuffið... Þannig er mál með vexti að Ólinn minn ætlar að
koma í heimsókn til Íslands um Thanx-giving og ég hlakka ógeðslega
mikilð til!! Ástæðan fyrir því að ég er að deila þessu með ykkur er
sú að ég ákvað að leyfa ykkur einnig að njóta hans ótrúlega
persónuleika á meðan þessari stuttu dvöl stendur með því að halda
kanski party laugardaginn 25 nóv. En það er einn hængur á og hann
er sá að ég er ekki búin að bera þetta undir Óla þannig að þessu
skal tekið með hæfilegum fyrirvara. Ef skildi að ekkert yrði úr
þessum partyhöldum þá verðið þið að skrá ykkur á heimsóknartíma sem
verður að vera samþykktur af mér. Skilið? En annars vona ég að þið
séuð öll á lífi og svona, og allt sé gaman og svona...Stutt í jólin
og svona.. Kveðja Miss Hrafna Commentið svo á þetta þarna lufsurnar
ykkar! Veit alveg að þið hafið ekkert betra að
gera........Low-livers! nei ok ég er hætt, sorry
»
30.10.2006 12:13:24 / palli
Ég ætlaði að óska henni Svölu hjartanlega til hamingju með 22
ára afmælið í gær, vonandi áttirðu góðan dag. Kveðja Palli
»
30.09.2006 15:42:17 / helgi
Við fálagarnir erum hér staddir á
Píter Banks Væ í góðum gír..... ekkert spes að vera hérna!
voðalega lítiðað frétta, búnir að vera edrú öll
kvöldin, búnir að vera heima að horfa á olsen gengið, borða
flödeskum og hafa það gott! Hrabba,þú hefðir ekkert átt
að koma með,þetta er ekkert spes!!!!
En annars er þetta búið að vera hreint út sagt
magnað.... við erum búnir að drekka frá okkur vitið öll
kvöldin og mála bæinn rauðann! Það verður að segjast að guðrún hafi
sett punktinn yfir i-ið með því að setja í fluggírinn
og dúndra hinum Jóhanni Helga út svo að hann geti séð þessa
myndarmenn sem fyrst! Ekki hægt að segja annað en þarna er
myndardrengur á ferð og hann á bjarta framtíð fyrir höndum,
allavegana er byrjunin ekki slæm, sjá 2 skelþunna myndarmenn strax
á fæðingarstofunni!!
En við viljum óska nýbökuðum foreldrum,
öfum, ömmum, frændum og frænkum með þennan unga
meistara!!
Kveðja Knoll og Tott!
»
30.09.2006 14:59:01 / arnór
Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar, settum nokkrar myndir inná
http://barnaland.is/barn/45891/
heyrumst,,,
og inga: Nimbusparken 5, 2.lej.3
2000 frederiksberg, Danmark
»
30.09.2006 14:02:23 / hrabba
ELSKU GUÐRÚN OG ARNÓR, TIL HAMINGJU MEÐ NÝFÆDDA KRÚTTIÐ! ÞIÐ VERÐIÐ
AÐ VERA FLJÓT AÐ SLKENGJA INN MYNDUM, ÉG ER AÐ DEYJA ÚR
SPENNING!!!!



Gott að allt hafi líka gengið eins og í sögu og
ég öfunda Helga og Jóa endalaust mikið fyrir að vera þarna úti með
ykkur og vera fyrstir af vinahópnum til að sjá nýjasta meðliminn
Endalaus ást til ykkar Hrabba
»
24.09.2006 16:25:14 / svala
Hae elsku Gudrun min til hamingju med daginn... vona thu hafir
tad supergott i dag !! bid ad heilsa litla krilinu ...
miss you.. love svala
»
Síður:
1 2 3 ...
20